Hestaíþróttadómarafélag Íslands starfar samkvæmt reglum frá Alþjóðasambandinu FEIF. Reglur þess má finna á https://www.feif.org/sport-dept/documents/
Lög HÍDÍ voru svo samþykkt á aðalfundi árið 2025.
Lög Hestaíþróttadómarafélags Íslands
1. grein
Hestaíþróttadómarafélag Íslands er félag allra dómara í hestaíþróttum í landinu. Aðsetur félagsins er í Reykjavík. Skammstöfun fyrir nafn félagsins skal vera HÍDÍ.
2. grein
Tilgangur félagsins er:
a) Að halda félagatal yfir alla hestaíþróttadómara í hestaíþróttadómarafræðum í landinu.
b) Að gangast fyrir endurmenntunarnámskeiðum, nýdómaranámskeiðum, fræðslufundum svo og ráðstefnum fyrir dómara, í samráði við dómaranefnd LH.
c) Að sjá til þess að hestaíþróttadómarar starfi í anda þeirra laga, sem ársþing LH setur.
d) Aðalfundur HÍDÍ ákveður launakjör og ferðakostnað dómara í byrjun hvers árs.
e) Að skila fulltrúa með landsdómararéttindi í Dómaranefnd LH.
f) Að flokka dómara í alþjóða-, lands- og héraðsdómara í samráði við Dómaranefnd LH.
3.grein
Aðilar að HÍDÍ geta allir hestaíþróttadómarar í landinu orðið, sem hafa lokið tilskyldu prófi og greiða árlegt félagsgjald.
4.grein
HÍDÍ heyrir undir og lýtur lögum og reglugerðum LH, en að öðru leyti stjórnað af:
a) Aðalfundi félagsins
b) Stjórn HÍDÍ
5.grein
Aðalfundur HÍDÍ skal haldinn í janúar ár hvert. Aðalfundurinn fer með æðsta vald félagsins. Skal til fundarins boðað með auglýsingu eða á annan sannarlegan hátt með 14 daga fyrirvara. Aðalfundurinn er löglegur, ef löglega er til hans boðað.
6.grein
Á aðalfundi hafa allir dómarar innan félagsins atkvæðarétt og málfrelsi, auk þess hafa rétt á fundarsetu með málfrelsi og tillögurétt:
a) Stjórn og varastjórn HÍDÍ
b) Stjórn LH
Auk þess getur stjórn félagsins boðið öðrum aðilum fundarsetu, ef hún telur ástæðu til og skulu þeir hafa málfrelsi. Tillögum um lagabreytingar og skipulagsmál, sem óskast tekin fyrir á aðalfundi, skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
7.grein
Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:
1. Formaður setur fundinn
2. Kosinn fundastjóri og fundarritari
3. Skýrsla stjórnar félagsins
4. Lagðir fram reikningar félagsins
5. Umræður um skýrslu og reikninga og þeir bornir undir atkvæði.
6. Lagðar fram tillögur
7. Afgreiðsla tillagna
8. Ákvörðun félagsgjalda sbr.9gr.
9. Ákvörðun laun og ferðakostnað dómara sbr.2gr.
10.Kosning stjórnar og varamenn í stjórn sbr. 8.gr.
11.Önnur mál
12.Fundarslit
8.grein
Stjórn HÍDÍ fer með æðsta vald félagsins á milli aðalfunda. Stjórnina skipa 5 manns og 2 til vara. Formaður skal kosinn fyrst til eins árs í senn, en síðan tveir stjórnarmenn til tveggja ára í senn, þó þannig að tveir gangi úr stjórn ár hvert. Ennfremur skal kjósa tvo varamenn og taka þeir sæti í aðalstjórn í forföllum aðalmanna í þeirri röð, sem þeir eru kosnir. Stjórn er heimilt að boða varamenn á stjórnarfundi og fá þeir þá málfrelsi og tillögurétt. Stjórnin skiptir með sér verkum.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
9.grein
Stjórn félagsins skal innheimta félagsgjöld, sem aðalfundur ákveður og verða þau innheimt fyrir endurmenntunarnámskeið ár hvert. Dómarar halda félagsaðild sinni svo lengi sem þeir greiða félagsgjöld.
10.grein
Til að viðhalda dómararéttindum þarf að mæta á endurmenntunarnámskeið ár hvert. Dómari þarf að sitja allt námskeiðið án frávika til þess að virkja réttindi sín það ár. Dómari sem sækir ekki endurmenntunarnámskeið í 2-5 ár er heimilt að sækja endurmenntunarnámskeið og standast þar til gert stöðupróf til að öðlast réttindi sín á ný. Sæki dómari ekki endurmenntunarnámskeið í 6 eða fleiri ár þá er honum gert að sækja nýdómaranámskeið og endurnýja þannig réttindi sín. Dómari þarf að dæma a.m.k. eitt löglegt mót á þremur árum til að viðhalda réttindum sínum.
11.grein
Lögum þessum er hægt að breyta á aðalfundi HÍDÍ með 2/3 greiddra atkvæða. Tillaga um að leggja niður félagið telst aðeins samþykkt að hún hafi hlotið 3⁄4 atkvæða. Verði félagið lagt niður skulu sjóðir þess og eignir renna til LH.
12. grein
Skipa skal árlega í fræðslunefnd HÍDÍ. Stjórn sér um að velja tvo í einu. Fræðslunefnd skal falið að gera tillögu til stjórnar um fræðsludagskrá á vegum félagsins og koma að árlegri endurmenntun.
13. Grein
Dómarar HÍDÍ skiptast í Héraðsdómara, Landsdómara og Alþjóðdómara. Lágmarksaldur dómara er 20 ár. Héraðsdómarar hafa rétt til að dæma öll almenn íþróttamót eins og lög og reglur LH segja til um. Til að hljóta Landsdómararéttindi skal dómari hafa dæmt tíu mót eða fleiri og staðist Landsdómarapróf sem stjórn H.Í.D.Í heldur.