Leiðarinn á ensku – nýjustu útgáfu má einnig finna á vef FEIF
Leiðari fyrir dómara í hestaíþróttum
–
Grundvallarviðmið
Samspil knapa og hests skal vera grundvallarviðmið í dómum. Knapinn á að fara með hestinn af nærgætni, sanngirni og virðingu; vera sannur leiðtogi hans fremur en drottnari. Hann verður ávallt að láta velferð hestsins sitja í fyrirrúmi, standa vörð um öryggi hans og heilbrigði. Hesturinn á að geta sinnt verkefni sínu af gleði; vera mjúkur og slakur – en jafnframt öruggur, áhugasamur og vakandi.
Meginregla
Meginregla við dómstörf er sú skylda dómara að leggja óvilhallt, jafnvægt og sanngjarnt mat sem gerir heildarsýningunni góð skil.
Tilgangur
Leiðarinn er hjálpargagn sem gerir dómurum kleift að dæma í anda þess grundvallarviðmiðs og þeirrar meginreglu sem getið er að framan.
Lykilatriði
Leiðarinn byggir á einstaka völdum lykilatriðum sem hafa verður í huga þegar lagt er jafnvægt mat á frammistöðu í hestaíþróttum. Þessi lykilatriði eru:
• Reiðfærni og samband
• Taktur og jafnvægi
• Mýkt og slökun
• Form og hreyfingar
• Útfærsla
Taka verður öll lykilatriðin með í matið og skal meginreglan vera sú að gæði eins atriðis geta ekki vegið upp alvarlega galla á öðrum atriðum. Til þess að hindra að svo gerist eru eldveggir á milli hinna ýmsu ákvæða sem sett hafa verið fyrir hvert lykilatriði. Eldveggirnir leiðbeina dómaranum um þau einkunnamörk sem standa til boða og því er ekki hægt að sniðganga þá.
Almenn leiðsögn
Grundvallarviðmiðið, eins og það er tilgreint hér að ofan, er einnig almenn leiðsögn um mat á gæðum reiðmennsku. Til viðbótar skal reiðfærni einnig ákvarðast af tækni knapans, jafnvægi og tímasetningu. Reiðmennskan skal einkennast af léttleika og næmni en ekki af kröftum og óhóflegri pressu. Öll sýningin skal endurspegla faglega þjálfun knapa og hests sem og gaumgæfilegan og sanngjarnan undirbúning.
Ábyrgð dómara
Leiðarinn getur ekki gefið nákvæm svör við öllum þeim spurningum sem upp kunna að koma í dómstörfum. Slíkt rit væri nánast óvinnandi. Það er því skylda hvers dómara að viðhalda og bæta þekkingu sína á þeim greinum hestafræðanna sem leiðarinn byggir á. Með því móti ætti dómurum að vera mögulegt að dæma í anda leiðarans í flestum tilfellum.